<$BlogRSDUrl$>
Háfleygt blogg að hætti Snorra

29. febrúar 2008

föstudagur, febrúar 29, 2008
Góða kvöldið gott fólk.

Nú í dag er hlaupársdagur, 29. febrúar 2008. Ég vil óska þeim öllum sem eiga aðeins afmæli á fjagra ára fresti til hamingju með blessaða afmælisdaginn sinn. Ég veit ekki hvernig er að eiga afmæli á þeim kæra degi en það er líklega mjög skrítið.

Tökum sem dæmi mann sem var í Mogganum í dag. Hann hefur átt 24 afmælisdaga og í raun er hann aðeins 24 ára. Hins vegar hef ég aldrei litið á jafn ellilegum manni og á myndinni og segist hann hafa lifað í 92 ár.

Þetta dæmi er skýrt dæmi um fólk sem á afmæli 29. febúrar. Fólk sem á afmæli á þessu 4ja ára fresti veit ekkert hvernig það er að eiga afmæli. -Búið að gleyma því að eiga afmæli!


Ég sit hérna upp í rúmi og blogga og er með sjónvarpið í gangi. Það er alveg stórfurðulegt að hafa svona hroðalega lélegar kvikmyndir eða þætti á öllum stöðvunum.

Skjár einn: Póker
RÚV: The Propostion -- Hvaða mynd er það???
Stöð2: Into the Blue

Væri nú alveg allt í lagi að hafa betri myndir á þessu kvöldi - sérstaklega fyrir það fámenna fólk sem á afmæli á þessum degi.

- góðar stundir,,




Samgöngumálaráðherran opnaði vefinn aftur með prompi og prakt!

sunnudagur, febrúar 24, 2008
Jú, góða kvöldið gott fólk! Ég ákvað að tjá mig aftur hér í gegnum netið. Síðan hefur verið lokuð sökum anna og lítinn áhuga á blogga undarfarna mánuði.

Hér fyrir neðan eru nokkrir punktar sem ég persónulega þoli og þoli ekki, þeir eru eftirfarandi:

- Blogg moggans!
- Tuð
- Óþarfa áreiti
- Afbrýðisemi
- Óþarfa neikvæðni
- Óþarfa hroki

Ég lifi hins vegar fyrir eftirfarandi:

- Kampavín
- Rauðvín/hvítvín
- Góða osta
- Góðar stundir með góðum vinum (gera það ekki allir?)
- Flipp og djók!
- Fara á góða tónleika og enda sveittur eftir á!


Helgin var helvíti góð. Fór á Laugarveginn síðla kvölds á föstudaginn og laugardaginn með Kristján Ara, Emil Þóri og Bjarna blettatígri! Bjarna fór að kostum og ekki veit ég til þess að aðrir hafi gert þetta eins vel sem hann gerði. Hann átti Laugarveginn.


Endilega tékkiði á vefsíðunni: www.lettfeti.bloggar.is - vefsíða Fjallgöngufélags Léttfetar og Eyvinds.

p.s. langar feitast til að fara til London og horfa á Radiohead og Arcade fire á sviði.

Tónlist augnabliksins:
Wake-up - Arcade Fire


Matur - Já, Takk! ...

mánudagur, september 11, 2006
Já, sæl veriði!


Já alltaf geta titlarnir verið jafn óáhugaverðir og hestur að gretta sig! - Maður spyr sig?



Já, busadagurinn farinn frá í fjarska! Talan 90 er flott tala! ...



Ég er að lesa núna síðustu daga bókina Rokland eftir þann mæta pilt úr vesturbænum [ég held það! - ég meina eru ekki allir þaðan?] Hallgrím Helgason.




Það er mikið af mjög svo áhugaverðum bloggum núna þessa stundina hjá mér. Þau teppast inn í höfðinu eins og manndýrinn gerðu nú um árið í "Betri Tölvum", sem eru ekki fyrir hálfan aur góðar. Bila eins og gamall Skódi!



Já, eins og titill þessa bloggs segir, ætla ég hér í þessu bloggi að tala um mat! Það sem er efst í huga mínum er heit Mjólk.
Oft hef ég komið inn í eldhús og sé þá mjólkurfernu á eldhúsborðinu. Ég tek mér tvær brauðsneiðar og set í brauðvélina! Því næst tek ég mér glas og helli mjólkinni í tandurhreina glasið - mjólkurglas. Þreytan eftir erfiðið við að klást við stærðfræðidæmin sem ná upp á höku og Jarðfræði fyrirlestrina hjá George, Georg og félagar?, gerir það að verkum að ég hef enga hugmynd um hversu lengi þessi tiltekna mjólkurferna hafði verið lengi á borðinu, bíðandi eftir næsta notanda! Já, ég smyr brauðin og sest við borðið. Tek Moggan og byrja að lesa. Lesa þennan stóra, þykka auglýsingabækling um fréttir síðasta dags, sem ég hef heyrt mörghundruð sinnum í útvarpi, á skjánum og á tungu manna! Já, þetta er þjóðfélagið í dag. Þjóðfélag sem þrífst á skoðunum, peningum og svikum. Ég tek upp mjólkurglasið og fæ mér sopa! Já, þetta bragðast verra en kókoshnetusafi úr óþroskaðri kókoshnetu, hinni margfrægu hnetu sem ég bragðaði safann úr í Hawaii um árið. Þetta er eins og að drekka fitusafan úr puluspakka/pylsupakka (ef einhverjir Akureyringar lesa þetta blessaða blogg mitt!) Pakka sem á stóð "best fyrir": ágúst 2003. Já, heit mjólk er viðbjóður! Er mjólk viðbjóður!???,,, niiiiieeee!


Já, eftir að ég hafði lokið mig af á klósettinu eftir þennan "pulsupakka" fór ég að hugsa til þessa afhverju í fjan... hún hefði verið á borðinu óhreyfð! Hver var síðastur á fótum fyrir skóla eða skyldu!? .... Og svarið sem ég fékk var ég! ...



Lögin;

[ Ensími ]


Já draumur íslenskra kvenna.


ÁFRAM miðvikudagar!

Snorri!


Íþróttafélagið vs. Busadagurinn ...

fimmtudagur, september 07, 2006
Jú, blessuð lesendur góðir!

Í gær var busuninn í MH. Og við í íþróttaráði voru með 20 fermetra svæði þar sem við létum rjúpuna rempast og rempast við staurinn. Við höfðum ýmsar stöðvar og ein stöðinn var til dæmis hið vígfræga og mjög svo skemmtilega "píp-test"! Maður heyrði það, og ekki frá einni manneskju, að busarnir hefðu komið út úr básnum móður og másandi. Já þetta var fínn dagur. Allt gekk vel!
(Check it out! -> http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4284309/12)

Svo fórum við 6 félagarnir í gott ball hjá honum Gulli, einhvers staðar eru nú myndir til. Vonandi finnast þær mjög bráðlega! En þetta var fínasta partý, þó ekki betra en ég hef haldið í gegnum tíðina! ....


Hópur Kópur

sunnudagur, september 03, 2006
Já gott sælt veri fólkið!


Já, eftir að það fór að spyrjast út að þetta blogg mitt væri "hætt" fór hópur fólks að labba um alla Reykjavík til að safna undirskriftum. Það voru komnar um 51% af Kjalarnesi þegar hópurinn gaf upp laupanna! - Ég sé mig færan um að færa þessum Kjalarnesingum visku mína og skemmtun.

Já maður er lifandi. Ég er ekki dauður þó að þetta blessaða blogg mitt hafi verið eitthvað dautt! Svona eru sumrin. Þau eru skemmtilegasti tíminn; vakna klukkan 06:00 alla virka daga nánast!
Já, ég var að vinna hjá Flugfélagi Íslands. Skemmtilegt nokk! ... Svo fór maður á Austurlandið í veiði.

Talandi um ferð...


Síðast liðinn laugardag eða 26. ágúst, nánar tiltekið á 50. afmælisdag móður gömlu, ákvað ég að fara til Keflavíkur. Þau gömlu höfðu farið deginum áður til Rómar, höfuðborg heimsins fyrir annað þúsund árum.
Ferð mín hafði enga aðra meiningu en að drösslast með bílinn okkar frá Keflavíkur heim að "bláa" nesinu.
Ég var búinn að horfa á sjónvarpið í nokkrar klukkustundir og fannst því kominn tími til að gera eitthvað að viti, þó ég væri þreyttur mjög eftir Fimmvörðuháls deginum áður!
Ég hringdi í BSÍ og spurði hvenar ferðir til Keflavíkur, Leifsstöð væru. Klukkan korter yfir 2 að íslenskum tíma skoppaði ég út úr húsi í átt að bílskýli strætó, sem eru ekki nema ca. 18,74 metrar frá kofanum. Strætó kom nokkru síðar. Ég fór út úr stætó við Þjóðarbókhlöðu. Ég rempaðist við að hlaupa að BSÍ. Það var mikill barátta, harssperrur fóru að syngja hina ákveðnu vísu. Ég varð að flýta mér - var að missa af síðustu rútunni, brottfarartími hennar var stundvíslega klukkan 15:00. Ég náði í tæka tíð. Keypti miða á ["fokking"] ellefuhundruðkrónur. Klukkan 15:01 leggjum við af stað út í hraunið í átt til Keflavíkur.

Við Voga hugsaði ég eftir farandi: "já, bíddu við. Ég er að fara að keyra bíl, þá þarf maður lykil. Bíddu er ég með hann á mér. Ha!!! er ég með hann!???? .... Nei shit! [svitakyrtlarnir fóru að sinna vinnu sinni á fullu!!] - Ég er ekki með heeeelv. lykilinn.


Já, eigandi þessa stórbrotna bloggs, hafði keypt sér miða til Keflavíkur með rútu, en hafði gleymt aðal hlutnum = bíllyklunum! Hann hafði þó ekki gleymt öllu, hann var í staðinn búinn að taka með sér poka sem í voru 4 geisladiskar.


Þessi ferð var til einskis. - Ég gat í staðinn verið í heitu sápubaði, fótabaði, heitri sturtu - SOFA!



Já. Þetta gerir maður ekki - allavega ÞÚ! ætlar ekki að endurtaka leikinn og "joina" hóp sem ég er nú þegar kominn í!


Lag;

Ain´t That A lot of Love með Taj Mahal


París í anda Amélie

þriðjudagur, maí 23, 2006

Sæl veriði!

Hér sit í borðstofunni, í því húsi sem við fjölskyldan leigðum. Hér við hægri hönd er fullt glas með franska bjórnum Laffe. - Fínn bjór!


Í gær var planið að fara í Effel-turninn. Við biðum í röðinni í um 30min. og þegar komið var á okkur tókum við eftir því að efsta hæðin, þriðja hæðin, var lokuð vegna mikils vinds. Það var frekar gremjulegt að hafa beðið eins og hálfviti í röð í margar mínútur. Við því fórum á Louvre-safnið, þar eru stórbrotnir hlutir í því glæsilegu húsi! Undurfögur listaverk, sem vert er að líta betur á! Sáum nokkur verk eftir Botticelli og Rembrandt. Þar var að sjálfsögðu verkið; Mona Lisa. Rosalega skrýtið hvernig hún horfir á mann! Það er eins og hún horfir á mann í alskonar "hornum".

Í dag var farið aftur og reynt við Effel-turninn. Efsta hæðinn var opinn. Ég meina, maður fer náttla efst! Ekki satt? ...
Það var alveg ótrúlegt útsýni efst. Þarna sá maður best hversu falleg þessi borg, París, er. Ótrúlega flottar byggingar og rosalega flott hvernig göturnar brjóta upp húsaraðirnar. Miðbærinn er fallegasti miðbær sem ég hef augum litið. Þar mætast nútíminn og fortíðin, þó fortíðin sé í miklum meirihluta. Þessi gömlu hús, sem hafa gífurlega sögu í gegnum aldirnar, eru ótrúlega flott og falleg. Algjör listaverk! Eftir Effel-turninn var ferðinni heitið að Notre Dame. Hún er rosalega falleg kirkja, ótrúlega flott. Hún var svo lengi í byggingu á sínum tíma að það er hægt að sjá tvo byggingastíla, rómverskan og gotneskur.

Á morgun er planið að fara í þennan Disney-garð. Þar verður mjög líklega mjög gaman, eflaust góðir rússíbanar.


Kominn nú þegar með 2 flotta sexpunda húfur! Nú er bara að velja!

En það er matur. Í kvöld ætla ég að skoða umhverfið og kíkja á mannlífið.



Au revoir!


Snobbi


París! ...

laugardagur, maí 20, 2006



Já, góðann daginn gott fólk!

Til gamans má geta þess að þessi færsla er sú 100. í röðinni. Húrra!

Snemma á morgun er ég á leiðinni til Parísar, til Frakklands, þjóðar sem hefur yndi að drekka gott rauðvín, góðan mat með Baquette-brauði. Já, þetta verður fjör! Vélin fer klukkan 07:40.


Ég byrjaði í vinnunni þriðjudaginn var! Vann frá klukkan 06:30-1500. Alveg fínt! Og mun halda líklega því áfram allt sumarið! ...

En heyrumst heil, bráðlega. - Planið er að taka myndir!

Snobbi...


Lögin;
[Sticky Fingers með Rolling Stones]


Flug + Flug = 2Flug

laugardagur, maí 13, 2006
Já, góðann daginn gott fólk!

Þetta blogg er til þess ætlast að setja á þessa blessuðu bloggsíðu nokkrar myndir sem daga mína hafa drifið. Þetta hefur allt skeð í þessari stórbrotnu en undurskemmtilegu prófatörn, sem í dag [í gær =04:13] var lokið - allavega hjá mér[múhahahah!] og jú, fleirum! Ég tók 5 próf, og verð ég að segja að mér hafi gengið ágætlega í. Í vikunni sem leið gerðist mikill sorgaratburður, sem aldrei mun gleymast í mínu minni!

Þessi mynd hér til vinstri er af einkabíl Unnur Birna! Bíllinn á skrásetningarnúmer bílsins gefur það vel til kynna!












Þessi fína mynd af flugvélinni TF-ESI, Cessna 150. Fór með Axeli á henni 6. maí sl. Fórum Suðurland og Eyrarbakki (dj. skítabær er það!)











Já, hmm! Þetta er hann Steini Stóri, nánar tiltekið; Steini der grosse mand!
Við að búa okkur undir þýskuprófið!











Mynd af vindpoka á Stykkishólmsflugvelli, skammstafað BIST.













TF-SKN, að lenta á Stykkishólmi.




























Fórum að lokum í Húsafell, og vorum þar heillengi í fokking kuldanum. En fínt! Umferð og læti! ...










Já, nú er lokaballið, vinnan og París að nálgast!

Kveðja;

Snobbi Bj.


Lögin;
[Cat Spectacular með Bearsuit]


Roskilde ? ...

fimmtudagur, maí 04, 2006

Já, góðan daginn!


Ég vil byrja á því að óska Hjalta Geir Erlendsson, betur þekktur sem Erlendsen til hamingju með "stór" afmælið. Maðurinn bara orðinn 19 ára.



Þann 25. júní - 1. júlí verður haldinn árleg tónlistarhátíð í bænum Roskilde í Danmörku. Dagana 29. júní - 1. júlí koma helstu böndin sem spila á hátíðinni.

Böndin sem soga mig á þessa hátíð eru:



+ - Roger Water (forsprakki Pink Floyd) spilar alla Dark Site of the Moon!
+ - Scissor Sisters
+ - Kanye West
+ - Franz Ferdiand
+ - Sigur Rós
+ - The Strokes
+ - The Streets
+ - Placebo
+ - Morrisey
+ - Kaiser Chiefs
+ - Kashmir
+ - Bob Dylan
+ - Deftones
+ - Shout Out Louds

+ - Opeth (Hvar er Gunnar?)


Þetta eru böndin sem ég hef mikinn áhuga á að sjá.

Góðar stundir!

Snobbi


Kannt þú að syngja ? ...

þriðjudagur, maí 02, 2006
Bonjour! ...

Já, gott fólk.

Ég vil óska Svein Skorra til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn. - Til hamingju! ...

Einnig vil ég óska Ragga, Matei og Helga Frey fyrir að vera búnir með STÆ703. - Rúst! Takið fokking Gunna snilla í rúmið! - Þið vitið hvað ég á við. Smá persónu- og myndlíking.

Hér er ég kominn! Ég er kominn hér til byggða eftir mína vetursetu í Kína.
Þar er ég orðinn umboðsmaður einnar af fremstu söngkonu Kína. Sú yndislega söngkona vann í svokallaðri iDOL keppni sem haldinn var í Kína í allan vetur og mér var sýndur sá mikli heiður að ég var fenginn til að vera umboðsmaðurinn hennar! ...
ð En allavega, þessi ágæta söngkona heitir Hao Zhuo Mi Huang! Hún er frá Shoungzou í miðhluta Kína. Hennar uppáhaldsmatur er hrísgrjón [of course = kínverji (asninn þinn!)] með raspassósu og appelsínuforrté í gytrunes ávöxtum, sem er eitthvað mjög gott í Kína. Henni finnst mjög skemmtilegt að pússla pússluspil! Hennar persónulegt met er að pússla pússluspil sem taldi samtals 78.569 pússluspil! Það var sem sagt XXL plakkat af henni sjálfri syngja hennar singul, sem er að gera allt vitlaust í Kína, á úrslitakvöldi iDOL. Hennar hinnsti draumur er að sjá úlfaldanna í Síberíu einsog hún sagði!
Hér fyrir neðan er video með þessari elsku! Hún er að syngja lagið sitt á úrslitakvöldi iDOLsins. Hér er linkurinn:

http://video.google.com/videoplay?docid=-6923747437946610943


Þetta er gott dæmu um yfirburða góða söngkona sem nær öllum tónum sem hún vill. Bæði uppi og niðri!...


Sumarpróf eru að renna í hlað. Mitt fyrsta er núna á föstudaginn! Svo bara vinna og París.


En veriði sæl! ...


Lögin;
[Space Cowboy með Jamiroquai]